Fotbolti.net
13.11.26 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson

Hvílir þjálfarabölvun á De Ligt?

Matthjis De Ligt

Matthjis De Ligt

Canon

Mynd: EPA

Michael Carrick var rekinn sem stjóri Manchester United í gær og mun Mauricio Pochettino taka við af honum. Fyrir hollenska varnarmanninn Matthijs de Ligt þýðir það enn ein stjóraskiptin á ferlinum.
Carrick rekinn frá United (Staðfest)
TENGT EFNI

Carrick rekinn frá United (Staðfest)

Carrick var látinn taka pokann sinn eftir afleitt gengi United, en liðið hefur ekki unnið deildarleik síðan í lok ágúst.

United hefur náð samkomulagi við Pochettino og er búist við að hann verði kynntur sem nýr stjóri félagsins í dag.

Hollenska blaðið VI vekur athygli á því að hálfgerð þjálfarabölvun virðist hvíla á De Ligt, sem hefur fengið nýjan þjálfara í upphafi hvers einasta tímabils síðan hann þreytti frumraun sína með Ajax tímabilið 2016-2017.

Hjá Ajax lék hann undir stjórn Peter Bosz, Marcel Keizer og Erik ten Hag áður en leiðin lá til Juventus á Ítalíu. Þar tók við nýr þjálfari á hverju tímabili, fyrst Maurizio Sarri, síðan Andrea Pirlo og loks Max Allegri.

Sömu sögu var að segja hjá Bayern München þar sem De Ligt lék undir stjórn Julian Nagelsmann og Thomas Tuchel, áður en hann gekk í raðir United.

Þar hefur ekkert breyst og hefur Hollendingurinn þegar leikið undir stjórn Erik ten Hag, Ruben Amorim og Carrick. Nú stefnir allt í að Pochettino bætist á þann lista.

Það verður því verkefni Pochettino að aflétta þessari sérkennilegu bölvun, en til þess þarf hann sjálfur að endast í starfi fram á næsta tímabil.


Hvílir þjálfarabölvun á De Ligt?
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.