Fotbolti.net
13.11.26 - 12:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Patrekur Aron í Keflavík (Staðfest)

Patrekur Aron í Keflavík (Staðfest)
Canon

Mynd: Keflavík

Patrekur Aron Grétarsson er genginn í raðir Keflavíkur en hann kemur frá KFA. Í risastóra slúðurpakkanum var hann einnig orðaður við Val, HK og Fylki.

Patrekur er tvítugur miðjumaður sem átti mjög gott tímabil í sumar, kom að 18 mörkum á tímabilinu og var valinn í lið ársins af Harkinu.

Hann er Norðfirðingur sem er spenntur fyrir nýju verkefni.
Lið ársins og bestu menn í 2. deildinni 2026
TENGT EFNI

Lið ársins og bestu menn í 2. deildinni 2026

„Ég er mjög spenntur fyrir því að ganga til liðs við Keflavík. Þetta er stórt félag með mikla sögu og metnað og ég tel þetta vera rétta skrefið fyrir mig á þessum tímapunkti. Það hafa margir Austfirðingar komið hingað í gegnum tíðina og staðið sig vel, sem sýnir hversu gott umhverfi þetta er fyrir unga og metnaðarfulla leikmenn til að taka næsta skref. Ég hlakka til að takast á við þessa áskorun, leggja mitt af mörkum til liðsins og halda áfram að þróast sem leikmaður,“ er haft eftir leikmanninum í kynningu Keflavíkur.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.