13.11.26 - 14:15
Ívan Guðjón Baldursson
Pochettino: Framtíðin er björt

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Bandaríkjamenn eru svekktir að missa Mauricio Pochettino úr landsliðsþjálfarastarfinu þar sem hann er að taka við Manchester United.

TENGT EFNI
Pochettino tólfti stjórinn síðan Sir Alex
Nú hefst leit að nýjum landsliðsþjálfara og mun sérfræðingateymi leiða ráðningarferlið. Steve Cherundolo, þjálfari U23 landsliðs Bandaríkjanna, mun taka við A-landsliðinu þar til arftaki finnst.
Emma Hayes, landsliðsþjálfari kvennalandsliðs Bandaríkjanna, verður partur af sérfræðingateyminu ásamt Oguchi Onyewu, fyrrum miðverði bandaríska landsliðsins sem lék meðal annars fyrir Newcastle, AC Milan og Sheffield Wednesday á sínum ferli.
„Að stýra bandaríska landsliðinu hefur verið einn mesti heiður sem ég hef fengið að upplifa á mínum ferli. Ég er svo þakklátur fyrir framlag leikmanna og stuðning bæði frá áhorfendum og stjórnendum í þessu frábæra landi," segir Pochettino.
„Það er mjög mikið af gæðum í landsliðinu og miðað við hversu sterk unglingaliðin eru þá er framtíð bandaríska landsliðsins mjög björt."
Pochettino stýrði Bandaríkjunum til sigurs í 21 leik af 35 við stjórnvölinn, eftir að hafa tekið við þjálfarastarfinu fyrir rúmlega tveimur árum síðan.
Stjórnendur landsliðsins eru svekktir að Pochettino hafi ákveðið að skipta um starf enda hafa þeir miklar mætur á honum, alveg eins og stjörnuframherji landsliðsins Folarin Balogun.
„Ég myndi persónulega bara vilja halda hlutunum eins og þeir eru," segir Balogun sem hafnaði félagaskiptum til Everton á lokadegi sumargluggans.
„Hlutirnir hafa verið að ganga vel, við erum að spila flottan fótbolta og Mauricio er augljóslega þjálfari í hæsta gæðaflokki. Það leikur ekki vafi á því að við vildum halda honum."
Balogun er núna orðaður við félagaskipti til Man Utd enda hefur hann staðið sig frábærlega undir leiðsögn Pochettino.
Balogun er samningsbundinn Mónakó sem leikur í frönsku deildinni og er kominn með eitt mark á tímabilinu eftir að hafa verið meiddur fyrsta mánuðinn.