13.11.26 - 13:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Simon Tibbling yfirgefur Fram og semur við Aftureldingu (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Simon Tibbling er genginn í raðir Aftureldingar eftir tvö ár hjá Fram. Hann skrifar undir tveggja ára samning í Mosfellsbæ. Afturelding vann Lengjudeildina í ár og verður í Bestu deildinni á næsta tímabili.
„Ég er mjög ánægður og stoltur af því að semja við Aftureldingu. Ég hlakka mikið til að takast á við þetta verkefni og get ekki beðið eftir að byrja," segir Tibbling.
Auk þess að spila með Aftureldingu þá mun Simon koma inn í þjálfarateymi 2. flokks karla með Alejandro Zambrano sem er fagnaðarefni fyrir félagið.
Afturelding þakkar Fram fyrir fagmannleg og góð vinnubrögð í tengslum við félagaskiptin.

TENGT EFNI
Afturelding hefur mikinn áhuga á Tibbling
Tibbling, sem er 32 ára, kom til Fram fyrir tímabilið 2025, átti frábært tímabil og var valinn í lið ársins 2025. Á síðasta tímabili minnkaði hlutverk hans í hlutverkinu, sérstaklega þegar leið á og heyrðist af því að Fram væri tilbúið að hlusta á tilboð í sænska miðjumanninn.
Tibbling varð Evrópumeistari með sænska U21 landsliðinu 2015 og á ferlinum hefur hann einnig orðið danskur og hollenskur bikarmeistari.
Úr tilkynningu Fram
Á tveimur tímabilum í Úlfarsárdal lék Simon 43 leiki í Bestu deildinni og skoraði fjögur mörk.
Fram þakkar Simon innilega fyrir hans framlag til félagsins, fagmennsku og allar góðu stundirnar í bláu treyjunni.
Við óskum Simon og fjölskyldu hans alls hins besta í þeim verkefnum sem fram undan eru.