Fotbolti.net
13.11.26 - 14:30
Enski boltinn

„Moyes er í algjörri guðatölu og það réttilega"

David Moyes, stjóri Everton.

David Moyes, stjóri Everton.

Canon

Mynd: EPA

David Moyes er í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Everton. Hann hefur gert frábæra hluti fyrir félagið yfir tvær stjórnartíðir.

Everton hefur farið mjög vel af stað á tímabilinu og situr þessa stundina í sjötta sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
„Þetta er eiginlega bara fáránlegt og langt umfram allar væntingar," sagði Magnús Geir Eyjólfsson, stuðningsmaður Everton, í Enski boltinn hlaðvarpinu á dögunum.

„Ég er ekki að horfa á neina Evrópubaráttu, fyrst og fremst er ég að hugsa um að falla ekki. Það er eðli Everton mannsins að vera svartsýnn."

Moyes er að vinna við mjög erfiðar aðstæður eftir slakan félagaskiptaglugga í sumar. Bandaríski viðskiptamaðurinn Dan Friedkin er þá tilbúinn að hlusta á tilboð í Everton og skoðar að selja félagið, innan við tveimur árum eftir að hafa keypt það fyrir rúmlega 400 milljónir punda.

Moyes sagði frá því nýlega að hann hafi aldrei hitt eða talað við Friedkin. Eigendurnir fengu mikla gagnrýni eftir misheppnaðan sumarglugga sem skildi Moyes eftir með mjög þunnskipaðan hóp.

„Við eigum einn hægri bakvörð. Hann er lélegur, hann Maitland-Niles. Við höfum notað miðvörð í hægri bakvörð eða miðjumann. Við eigum einn vinstri bakvörð og einn framherja," sagði Magnús Geir.

„Moyes er í algjörri guðatölu og það réttilega."

Í spilaranum hér fyrir neðan er hægt að hlusta á umræðuna um Moyes og eignarhald Everton. Einnig er hægt að hlusta á þáttinn á öllum hlaðvarpsveitum.
„Moyes er í algjörri guðatölu og það réttilega"
Canon

Mynd: EPA

„Moyes er í algjörri guðatölu og það réttilega"
Canon

Mynd: EPA

Enski boltinn - Man Utd gæti fallið og Moyes í guðatölu

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.