13.11.26 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Andri hló er hann var spurður út í ósk Arnars - „Veit ekki alveg með það"

Á landsliðsæfingu í vikunni.

Mynd: KSÍ

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Á landsliðsæfingu í vikunni.

Mynd: KSÍ

Andri Lucas Guðjohnsen hefur verið funheitur að undanförnu og einungis einn leikmaður hefur skorað meira í ensku Championship heldur en íslenski landsliðsframherjinn.
Hann hefur verið orðaður við félagaskipti frá Blackburn í janúar en honum líður vel hjá félaginu og vel á Englandi. Andri ræddi við Fótbolta.net í vikunni.

TENGT EFNI
Andri Lucas: Er með geggjaðan innri hring sem eru alltaf til staðar
Líður hrikalega vel á Englandi
Hvernig sérðu framtíðina fyrir þér?
„Það er góð spurning. Mér líður allavegana hrikalega vel á Englandi. Mér finnst erfitt að hugsa út í að fara eitthvert annað. Ég væri bara mjög til í að vera áfram í Bretlandi og þetta er líka bara svo geggjaður fótbolti að vera partur af og sjá hvað þetta þýðir bara fyrir fólkið. Fótbolti er partur af menningunni, þannig ég vil svona helst vera bara áfram í enska boltanum."
Umboðsmaðurinn sér um það
Finnur þú fyrir eða spáirðu í áhuga frá öðrum félögum?
„Það er bara eitthvað sem að umboðsmaðurinn sér um. Auðvitað þegar framherjar eru að skora og eru að spila vel þá koma lið inn (með áhuga) og við sjáum hvað gerist næstu mánuði og og allt það. En eins og staðan er núna þá er ég bara með fulla einbeitingu á tímabilinu og verkefninu sem er í gangi með Blackburn."
Spurður út í ummæli landsliðsþjálfarans
Arnar vildi sjá bæði þig og Orra Stein hjá Manchester United, hvað fannst þér um það?
Andri Lucas hló áður en hann svaraði: „Já, það er spurning. Ég veit ekki alveg með það, en maður veit aldrei," sagði Andri í lok viðtals og hló aftur. Viðtalið má nálgast í spilaranum hér að neðan.
Hann verður að öllum líkindum í eldlínunni þegar Ísland mætir Búlgaríu í Þjóðadeildinni í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:45 að íslenskum tíma.

Draumur Arnars að Orri og Andri fari í úrvalsdeildina - „Vonandi báðir í United"

TENGT EFNI