13.11.26
Frá endurreisn til nýrrar krísu - Hvað er eiginlega að Manchester United?
ÍVAR BJÖRGVINSSON
Fyrir aðeins nokkrum mánuðum virtist Manchester United loksins vera á réttri leið. Michael Carrick hafði tekið við liðinu í erfiðri stöðu, gjörbreytt gengi þess og tryggt sæti í Meistaradeildinni. Stuðningsmenn voru farnir að sjá fram á bjartari tíma eftir mörg vonbrigðaár og Carrick var verðlaunaður með samningi til ársins 2028. Nú, aðeins hálfu ári síðar, hefur hann verið rekinn.
Manchester United staðfesti brottrekstur Carrick í gær eftir skelfilega byrjun á tímabilinu. Liðið situr í 18. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með átta stig eftir tíu leiki og aðeins einn sigur. Þetta er versta byrjun félagsins í efstu deild í 40 ár og brottreksturinn vekur óhjákvæmilega upp gamla spurningu. Hvers vegna tekst einu stærsta knattspyrnufélagi heims ekki að byggja upp stöðugan árangur?