Fotbolti.net
13.11.26 - 13:01
Ívan Guðjón Baldursson

Yfirlýsing frá Carrick: Ótrúlega þakklátur og stoltur

Yfirlýsing frá Carrick: Ótrúlega þakklátur og stoltur
Canon

Mynd: EPA

Michael Carrick hefur verið rekinn frá Manchester United eftir hörmulega byrjun á nýju keppnistímabili og er búinn að gefa frá sér yfirlýsingu. Stjórnendum félagsins tókst að sannfæra Mauricio Pochettino, landsliðsþjálfara Bandaríkjanna, um að taka við taumunum.
Carrick sár yfir því hvernig staðið var að brottrekstrinum
TENGT EFNI

Carrick sár yfir því hvernig staðið var að brottrekstrinum

Carrick tók við Man Utd í janúar og náði mögnuðum árangri með liðið á síðustu leiktíð. Hann segist skilja að félagið hafi ákveðið að reka sig, þrátt fyrir að lærlingar hans hafi átt tvo góða leiki fyrir landsleikjahlé. United vann glæsilegan endurkomusigur gegn Roma í miðri viku eftir að hafa lent 0-2 undir og tókst að vinna upp tveggja marka forystu í tvígang gegn Aston Villa um helgina til að bjarga stigi í átta marka leik.

„Ég er ótrúlega þakklátur fyrir að hafa fengið að upplifa tækifærið að þjálfa draumaliðið mitt, það eru mjög fáir sem hafa hlotið þann heiður. Ég elska Manchester United og ég átta mig á ábyrgðinni sem fylgir því að vera hjá félaginu. Þetta er öðruvísi heldur en hjá hvaða öðru félagsliði sem er," segir Carrick.

„Þetta er einstakt fótboltafélag með merkilega sögu og ríkar hefðir. Ég fann fyrir innblæstri á hverjum degi út af sögu félagsins og menningu. Stuðningsmenn félagsins eru ótrúlegir og ég vil þakka þeim innilega fyrir samfylgdina. Það besta við mitt starf hér var að horfa á áhorfendur leysa tilfinningar sínar úr læðingi og missa sig úr gleði. Ég elska þetta félag og vildi gera mitt af mörkum til að gefa eitthvað til baka til stuðningsmanna eftir allt sem hefur verið gefið mér."

Rauðu djöflarnir eru afar óvænt í fallsæti í úrvalsdeildinni með 8 stig eftir 10 umferðir. Þeir eiga 6 stig eftir 4 umferðir í Meistaradeildinni.

„Ég veit að við höfum ekki verið að ná í góð úrslit upp á síðkastið en ég finn samt ekki fyrir neinu öðru heldur en ást frá stuðningsmönnum. Stuðningsmenn annarra félagsliða myndu snúa baki í mig og láta í sér heyra, en ekki stuðningsmennirnir hér. Þeir stóðu við bakið á mér frá upphafi til enda. Það þýðir mjög mikið fyrir mig, miklu meira heldur en einn eða tveir sigrar. Þetta er ástæðan fyrir því að ég varð ástfanginn af þessu félagi fyrir svo mörgum árum síðan.

„Ég vil þakka þjálfarateyminu sérstaklega fyrir. Þið lögðuð allt í sölurnar á hverjum degi og ég hefði ekki getað beðið ykkur um meira framlag. Ég er ykkur ótrúlega þakklátur fyrir hollustuna sem þið sýnduð, vinnuframlagið og stuðninginn. Sömuleiðis vil ég þakka öllu starfsfólkinu sem starfar á bak við tjöldin.

„Að lokum vil ég þakka leikmannahópinum alls hins besta fyrir framtíðina. Ég verð áfram stuðningsmaður Manchester United, það mun aldrei breytast. Ég óska þess að liðið náði góðum árangri, ég mun alltaf vera stoltur af því að hafa leikið mitt hlutverk. Núna mun ég horfa á leikina frá áhorfendapöllunum og hvetja liðið áfram sem stuðningsmaður."
Yfirlýsing frá Carrick: Ótrúlega þakklátur og stoltur
Canon

Mynd: EPA

Yfirlýsing frá Carrick: Ótrúlega þakklátur og stoltur
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.