Fotbolti.net
20.10.26 - 20:04
Brynjar Ingi Erluson

Ronaldo klúðraði víti í naumum sigri

Ronaldo klúðraði víti í naumum sigri
Canon

Mynd: EPA

Cristiano Ronaldo átti ekki sinn besta leik í 1-0 sigri Al Nassr á Neom í sádi-arabísku úrvalsdeildinni í kvöld.
Portúgalinn fékk gullið tækifæri til að skora sitt 981. mark á ferlinum þegar brotið var á samlanda hans, Joao Felix, innan vítateigs undir lok fyrri hálfleiks.

Ronaldo steig að sjálfsögðu á vítapunktinn, en fór illa að ráði sínu og skaut boltanum framhjá markinu.

Þetta var í 37. sinn á ferlinum sem Ronaldo mistekst að skora úr vítaspyrnu og í fyrsta sinn á þessu tímabili.

Vítaklúðrið kom þó ekki að sök því Al Nassr tryggði sér öll þrjú stigin með marki Felix þegar um hálftími var til leiksloka.

Al Nassr situr í þriðja sæti deildarinnar með 22 stig, þremur stigum á eftir toppliði Al Qadsiah.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.