20.10.26 - 18:07
Brynjar Ingi Erluson
Söguleg byrjun hjá Alberti og félögum

Albert á sinn þátt í frábærri byrjun Lazio

Mynd: EPA

Lazio er á miklu skriði í Seríu A á Ítalíu og hefur aldrei áður farið jafn vel af stað í deildarkeppninni.
Liðið hefur náð í 19 stig af 21 mögulegu í fyrstu sjö umferðunum og situr í öðru sæti, jafnt ríkjandi meisturum Inter að stigum.
Lazio hefur unnið sex leiki og gert eitt jafntefli, en Albert Guðmundsson hefur átt sinn þátt í þessum frábæra árangri. Hann tryggði liðinu dramatískan 2-1 sigur á Udinese rétt fyrir landsleikjahléið, en meiddist á öxl og hefur misst af síðustu tveimur deildarleikjum vegna meiðslanna.
Þetta er í fyrsta sinn í sögu Lazio sem liðið vinnur sex af fyrstu sjö deildarleikjum sínum og í sjöunda sinn sem það fer taplaust í gegnum fyrstu sjö umferðirnar.
Það er því full ástæða til bjartsýni hjá stuðningsmönnum Lazio sem hafa beðið lengi eftir því að sjá liðið berjast um titilinn.
Lazio varð síðast Ítalíumeistari árið 2000, en fyrir þremur árum hafnaði liðið í öðru sæti, sextán stigum á eftir Napoli sem hafði mikla yfirburði í deildinni það tímabil.

Seven games in, Lazio have made their best-ever start to a Serie A season ???? https://t.co/hhDA1KR1kU
— Lega Serie A (@SerieA_EN) October 20, 2026