20.10.26 - 19:00
Brynjar Ingi Erluson
Titilfögnuði Norrköping frestað

Ísak Andri og félagar fá annað tækifæri til að tryggja titilinn í næstu umferð

Mynd: IFK Norrköping

Sænska B-deildarliðið Norrköping missti af tækifærinu til að tryggja sér deildartitilinn þegar liðið tók á móti Örebro í kvöld.
Ísak Andri Sigurgeirsson var á bekknum hjá Norrköping sem tryggði sér á dögunum sæti í sænsku úrvalsdeildinni á ný.
Í kvöld fékk liðið tækifæri til að tryggja sér B-deildartitilinn, en það fór ekki alveg eftir áætlun því Norrköping lenti tveimur mörkum undir.
Liðið sýndi þó karakter og náði að jafna metin með tveimur mörkum á aðeins ellefu mínútum undir lok leiksins. Það dugði hins vegar ekki til sigurs og því verður titilfögnuðurinn að bíða.
Ísak Andri kom ekkert við sögu hjá Norrköping sem er áfram á toppi deildarinnar með 59 stig, átta stigum meira en Falkenberg þegar þrjár umferðir eru eftir.
Norrköping fær annað tækifæri til að tryggja sér titilinn í næstu umferð þegar liðið heimsækir Norrby sem er í fallbaráttu.