Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 22. janúar 2022 11:37
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið Everton og Aston Villa: Digne mætir aftur á Goodison
Philippe Coutinho kemur í byrjunarlið Villa
Philippe Coutinho kemur í byrjunarlið Villa
Mynd: Getty Images
Everton og Aston Villa etja kappi á Goodison Park í ensku úrvalsdeildinni klukkan 12:30 í dag. Lucas Digne mætir sínum gömlu liðsfélögum og þá er Philippe Coutinho einnig í liði Villa.

Duncan Ferguson stýrir fyrsta leik sínum eftir að Rafael Benítez var látinn fara á dögunum.

Hann gerir fimm breytingar. Jonjoe Kenny, Mason Holgate, Richarlison, Yerry Mina og Andros Townsend koma inn í liðið. Michael Keane og Seamus Coleman eru báðir á bekknum.

Steven Gerrard gerir tvær breytingar. Philippe Coutinho byrjar fyrsta leik sinn fyrir Villa og þá kemur John McGinn aftur í liðið en Danny Ings og Morgan Sanson eru á bekknum.

Everton: Pickford, Kenny, Holgate, Mina, Godfrey, Doucoure, Gomes, Gray, Townsend, Richarlison, Calvert-Lewin.

Aston Villa: Martinez, Cash, Konsa, Mings, Digne, McGinn, Douglas Luiz, Ramsey, Buendia, Coutinho, Watkins.
Athugasemdir
banner
banner