Fotbolti.net
24.06.26 - 23:17
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Mark dæmt af Vinicius Junior - „Skotar heppnir"

Mark dæmt af Vinicius Junior - „Skotar heppnir"
Canon

Mynd: EPA

Brasilía er 2-0 yfir gegn Skotlandi í hálfleik í lokaumferð C-riðils á HM.

Einhverjir telja að hann ætti að vera búinn að skora þrennu. Hann skoraði á 22. mínútu, hann komst fram fyrir Jack Hendry sem sparkaði í hælinn á Vinicius. VAR dæmdi Vinicius brotlegan og markið af.

Fyrrum dómarinn Darren Cann segir að markið hefði átt að standa.
„Það er smá snerting áður en hann spilar boltanum. Mér finnst Vinicius ekki brjóta af sér. Hann heldur stöðunni sinni og varnarmaðurinn sparkar bara í hann svo ég tel að Skotar geti verið ánægðir með þetta. Líka svolítið heppnir að fá þennan dóm með sér," sagði Cann.

Sjáðu atvikið hér
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.