Fotbolti.net
25.06.26 - 02:59
Jóhann Þór Hólmgrímsson

HM: Mexíkó með öruggan sigur - Suður-Afríka komst áfram

HM: Mexíkó með öruggan sigur - Suður-Afríka komst áfram
Canon

Mynd: EPA

Það var mikil spenna fyrir lokaumferðina í A-riðli á HM í nótt. Mexíkó var búið að tryggja sér sæti í 32-liða úrslitum. Suður-Afríka, Suður-Kórea og Tékkland gátu öll átt möguleika að komast áfram.
Mexíkó mætti Tékklandi sem hefur valdið miklum vonbrigðum á þessu móti. Staðan var markalaus í hálfleik en Mateo Chavez Garcia kom Mexíkó yfir eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik.

Aðeins sex mínútum síðar bætti Julian Quinones öðru markinu við af harðfylgi.

Guillermo Ochoa, markvörður Mexíkó, kom inn á sem varamaður og spilaði því á sínu sjötta heimsmeistaramóti. Hann er orðinn fertugur en hann hefur gefið það út að hanskarnir munu fara á hilluna eftir mótið.

Tékkar urðu fyrir áfalli þegar Tomas Soucek meiddist illa þegar hann var að setja pressu á Ochoa og var borinn af velli.

Alvaro Fidalgo innsiglaði sigur Mexíkó undir lokin og Mexíkó endar með fullt hús stiga á toppnum en Tékkar enda á botninum með eitt stig og eru úr leik.

Suður-Afríka sýndi alls ekki góða takta í fyrstu umferð gegn Mexíkó, liðið gerði síðan jafntefli gegn Tékklandi og er nú komið í 32-liða úrslitin eftir sigur á Suður-Kóreu.

Thapeol Maseko var hetja Suður-Afríku en hann skoraði eina mark leiksins eftir klukkutíma leik. Suður-Afríka endar í 2. sæti með fjögur stig. Suður-Kórea endar í 3. sæti með þrjú stig og það er ekki öll nótt úti enn fyrir þá.

Suður-Afríka 1 - 0 Suður-Kórea
1-0 Thapelo Maseko ('63 )

Tékkland 0 - 3 Mexíkó
0-1 Mateo Chavez ('55 )
0-2 Julian Quinones ('61 )
0-3 Alvaro Fidalgo ('90 )
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.