Einar Guðna: Verið þannig síðustu þrjú árin
Auglýsing

Einar Guðnason ræðir hér við aðstoðarmann sinn, Jón Pál Pálmason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markinu fagnað í kvöld.

„Ég hefði viljað vinna. Ég er svolítið vonsvikinn með það. Ég held svo sem að þetta hafi ekki verið ósanngjörn úrslit," sagði Einar Guðnason, þjálfari Víkings, eftir 1-1 jafntefli gegn Grindavík/Njarðvík í Bestu deildinni í kvöld.
Lestu um leikinn: Grindavík/Njarðvík 1 - 1 Víkingur R.
Það var dauft yfir fyrri hálfleiknum en í seinni hálfleiknum opnaðist leikurinn aðeins.
„Það var einhver titringur í báðum liðum. Það voru samt alveg sénsar þó þetta hafi ekki verið fallegasti fótboltinn. Í seinni hálfleik kviknaði vel í þessu."
Freyja Stefánsdóttir kom inn af bekknum og jafnaði. Af hverju var hún á bekknum í kvöld?
„Við héldum nákvæmlega sama liði og í leiknum gegn Þrótti sem var mjög góður leikur af okkar hálfu þó við höfum endað á að tapa honum. Mér fannst enginn eiga skilið að detta út. Freyja var búin að vera veik líka. Við sáum enga ástæðu til að breyta liðinu. Svo komu þær sterkar inn þrjár."
Víkingur hefur átt nokkuð erfitt uppdráttar hingað til á tímabilinu. Hvernig leggst framhaldið í þig?
„Það leggst ágætlega í mig. Við erum lið sem er alltaf betra seinni hluta tímabilsins. Við erum ekki með jafnmörg stig og við hefðum viljað vera með. Ég held að við verðum alltaf betri seinni partinn. Þessir leikmenn hafa verið það síðustu þrjú ár, betri seinni partinn og það verður væntanlega áfram þannig," sagði Einar.
Allt viðtalið er í spilaranum hér að ofan.