Madibo í fimm leikja bann á HM

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Assim Madibo, landsliðsmaður Katar, hefur verið dæmdur í fimm leikja bann á HM eftir brotið á þeim kanadíska Ismael Kone í leik Katar og Kanada í 2. umferð í B-riðli.
Madibo var rekinn af velli í 6-0 tapi Katar gegn Kanada á fimmtudaginn þegar hann braut á Kone með þeim afleiðingum að sá síðarnefndi fótbrotnaði.

Aganefnd FIFA hefur nú dæmt Madibo í fimm leikja bann fyrir alvarlegt brot, sem hægt er að áfrýja.
Kone gekkst undir aðgerð stuttu eftir leikinn og Madibo heimsótti hann þar. Lokaumferðin í B-riðli fór fram í kvöld og Kanada komst áfram þrátt fyrir tap gegn Sviss en Katar er úr leik.
Það er því ljóst að Madibo verður í banni á næsta heimsmeistaramóti.