HM: Sviss vann heimamenn og riðilinn - Katar úr leik

Johan Manzambi

Mynd: EPA

Bosnía og Hersegóvína er svo gott sem komið áfram

Mynd: EPA

Johan Manzambi

Mynd: EPA
B-riðli lauk á HM í kvöld en Kanada og Sviss kepptu um toppsætið. Fyrri hálfleikurinn var nokkuð rólegur en Sviss komst yfir strax í upphafi seinni hálfleiks þegar Ruben Vargas skoraði eftir sendingu frá Johan Manzambi.
Manzambi kom inná sem varamaður í síðasta leik og skoraði tvennu gegn Bosníu. Hann bætti öðru marki Sviss við í kvöld eftir tæplega klukkutíma leik. Hann hefur því komið að fjórum mörkum í síðustu tveimur leikjum.

Promise David minnkaði muninn eftir stórglæsilegan undirbúning Nathan Saliba. Promise David var nálægt því að jafna metin undir lokin en Gregor Kobel í marki Sviss var fljótur að bregðast við og varði skalla frá honum.
Nær komust þeir ekki og Sviss vann riðilinn með sjö stig en Kanada endar í 2. sæti með 4 stig.
Bosnía og Katar mættust en tapliðið er á leið heim og sigurvegarinn á tækifæri á að komast áfram sem eitt af bestu liðunum í 3. sæti riðilsins.
Hinn 18 ára gamli Kerim Alajbegovic kom Bosníu yfir með glæsilegu skoti fyrir utan teiginn. Mahmoud Abunada varð síðan fyrir því óláni að skora sjálfsmark eftir að boltinn fór af honum eftir skot frá Edin Dzeko.
Hassan Al Haydos náði að minnka muninn en það var Ermin Mahmic sem innsiglaði sigur Bosníu. Katar er því úr leik og Bosnía er í góðri stöðu í baráttunni um að komast áfram sem eitt af átta bestu liðunum í 3. sæti en Bosnía er með fjögur stig.
Bosnía Hersegóvína 3 - 1 Katar
1-0 Kerim Alajbegovic ('29 )
2-0 Mahmoud Abunada ('34 , sjálfsmark)
2-1 Hasan Al Haydos ('42 )
3-1 Ermin Mahmic ('80 )
Sviss 2 - 1 Kanada
1-0 Ruben Vargas ('46 )
2-0 Johan Manzambi ('57 )
2-1 Promise David ('76 )