Fotbolti.net
24.06.26 - 08:25
Elvar Geir Magnússon

Man Utd og Arsenal hafa áhuga á Scott

Alex Scott í leik með Bournemouth.

Alex Scott í leik með Bournemouth.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Stórlið sækjast eftir miðjumanni Bournemouth, Arsenal er í viðræðum við Leicester um bráðefnilegan leikmann og Aston Villa hefur mikinn áhuga á Bowen. Þetta og ýmislegt fleira í öflugum slúðurpakka dagsins.
Manchester United og Arsenal hafa áhuga á enska miðjumanninum Alex Scott (22) hjá Bournemouth en það gæti kostað um 60 milljónir punda að hreppa hann. (Mail)

Arsenal er einnig í viðræðum við Leicester City um enska kantmanninn Jeremy Monga (16) sem er U19 landsliðsmaður Englands. (Athletic)

Real Madrid hyggst ræða við Chelsea um möguleg kaup á argentínska landsliðsmanninum Enzo Fernandez (25) þar sem hann er efstur á óskalista spænska stórliðsins yfir miðjumenn. (AS)

Aston Villa hefur mikinn áhuga á enska kantmanninum Jarrod Bowen (29) hjá West Ham en það yrði erfitt fyrir Villa að kaupa hann þar til félagið selur leikmenn. (Athletic)

Aston Villa hefur gert það ljóst að félagið vill ekki selja enska miðjumanninn Morgan Rogers (23) í sumar. (Sky Sports)

Newcastle United hefur áhuga á þýska kantmanninum Said El Mala (19) hjá Köln og er í sambandi við Lille varðandi belgíska framherjann Matias Fernandez-Pardo (21). (Mail)

Liverpool er einnig tilbúið að reyna við þesa leikmenn ef félaginu mistekst að landa Yan Diomande (19) frá RB Leipzig eða franska framherjanum Bradley Barcola (23) frá Paris st-Germain. (Mail)

Arsenal er í áframhaldandi viðræðum um möguleg kaup á argentínska sóknarmanninum Julian Alvarez (26) hjá Atletico Madrid. (TeamTalk)

Bayern München er tilbúið að tvöfalda laun Michael Olise (24) til að reyna að halda franska landsliðsmanninum. (Christian Falk)

Real Madrid gæti reynt við norska sóknarmanninn Erling Haaland (25) hjá Manchester City ef brasilíski kantmaðurinn Vinicius Jr yfirgefur Bernabeu. (Sport)

Búist er við því að Manchester United geri formlegt tilboð í portúgalska miðjumanninn Mateus Fernandes (21) á komandi dögum. (TeamTalk)

Svissneski varnarmaðurinn Nico Elvedi (29) hjá Borussia Mönchengladbach er opinn fyrir því að fara til Leeds United. (Football Insider)

Aston Villa er í viðræðum við Flamengo um brasilíska varnarmanninn Emerson Royal (27). (TalkSport)
Jeremy Monga er 16 ára.

Jeremy Monga er 16 ára.

Canon

Mynd: Leicester

Enzo Fernandez.

Enzo Fernandez.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.