Messi á afmæli - Hvergi meira fagnað en í Bangladess

Aðdáendur Lionel Messi í Bangladess fagna afmælinu.

Mynd: EPA

Messi fagnaði deginum í faðmi liðsfélaga sinna í argentínska landsliðinu.

Mynd: Instagram

Lionel Messi er gríðarlega vinsæll um allan heim en hann er örugglega hvergi vinsælli en í Asíulandinu Bangladess (fyrir utan Argentínu mögulega).
Í Bangladess er fólk í hátíðarskapi í dag og fagnar 39 ára afmæli argentínsku goðsagnarinnar með pomp og prakt.
En af hverju er Messi svona feikilega vinsæll í Bangladess? Við erum með svarið við því.

TENGT EFNI
Maður dagsins á HM - Þegar Messi hætti fyrir áratug
1982 og 1986 var í fyrsta sinn sjónvarpað frá heimsmeistaramótinu í Bangladess. Á mótinu 1986 sló Argentína út lið Englands í 8-liða úrslitum. Bangladess var hluti af nýlenduveldi Englands og þess vegna tóku íbúar landsins ástfóstri við Argentínu.
Þrátt fyrir að í Bangladess búi 175 milljónir manns þá getur landslið þjóðarinnar ekki mikið og situr í 98. sæti á heimslistanum. Fótboltaáhuginn í landinu er þó mikill og margir styðja argentínska landsliðið og Messi.
Í háskólanum í höfuðborginni Dakka voru sérstök hátíðarhöld í tilefni dagsins og var sendiherra Argentínu meðal heiðursgesta.
Messi hefur farið stórkostlega af stað með argentínska landsliðinu á HM og sló markamet keppninnar með tveimur mörkum gegn Austurríki.
Hann fagnaði deginum í faðmi liðsfélaga sinna sem buðu honum upp á girnilega köku.

Messi fans in Bangladesh.
— World Cup HQ (@WorldCup26HQ) June 17, 2026
This is crazy ???????? pic.twitter.com/WeHroPf8gm