Fotbolti.net
24.06.26 - 17:31
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jói útherji

Real Madrid opið fyrir tilboðum

Camavinga gæti farið í sumar.

Camavinga gæti farið í sumar.

Canon

Mynd: EPA

Real Madrid og Jose Mourinho eru opin fyrir því að hlusta á tilboð í Eduardo Camavinga samkvæmt heimildum The Athletic.

Frakkinn, sem er 23 ára gamall, hefur ekki alveg staðið undir væntingum í spænsku höfuðborginni frá komu sinni frá Rennes árið 2021. Hins vegar segja aðilar nálægt Camavinga að það sé ómögulegt að hann fari í sumar.
Athletic segir að út frá því sé möguleiki á því að Real sé tilbúið að hlusta á tilboð í miðjumanninn Aurelien Tchouameni. Tchouameni er 26 ára franskur landsliðsmaður sem kom til Real frá Mónakó árið 2022.

Hann lenti í rifrildi við liðsfélaga sinn, Federico Valverde, í búningsklefa liðsins í vor. Valverde er hins vegar ekki falur á markaðnum.
Tchouameni.

Tchouameni.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.