Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 27. júlí 2021 14:00
Elvar Geir Magnússon
Írskt dómarateymi á Kópavogsvelli
Paul Mclaughlin.
Paul Mclaughlin.
Mynd: Getty Images
Það verður írskur dómari með flautuna á Kópavogsvelli þegar Breiðablik mætir Austria Vín á fimmtudaginn í Sambandsdeildinni.

Búast má við spennandi og skemmtilegum leik en 1-1 varð niðurstaðan þegar liðin áttust við í Austurríki í síðustu viku.

Paul Mclaughlin er dómari leiksins en allt dómarateymið kemur frá Írlandi. Flautað verður til leiks 17:30 á fimmtudag.

Valur heimsækir Bodö/Glimt eftir 0-3 tap í fyrri leiknum en þar verður ítalski dómarinn Paolo Valeri með flautuna. Valeri hefur mikla reynslu af því að dæma stóra leiki í ítölsku A-deildinni og þá hefur hann einnig dæmt í Meistaradeildinni.

Það verður líka brekka fyrir FH sem heimsækir Rosenborg eftir 0-2 tap í fyrri leiknum. Það verður ungverskt dómarateymi í Þrándheimi en Ferenc Karako heitir aðaldómarinn.
Athugasemdir
banner
banner