Með gögn sem sýna að Finnur Tómas sé enn hraðari
Fótbolti.net hefur fengið senda klippu sem sýnir leikmann KR ná 38,2 km/klst hraða í leik liðsins gegn KA í sumar. Leikmaðurinn sem um ræðir er varnarmaðurinn Finnur Tómas Pálmason.
Í síðustu viku var vakin athygli á gríðarlegum hraða Gils Gíslasonar, leikmanni FH, og í kjölfarið barst Fótbolta.net ábending um að Finnur hefði átt sprett þar sem hámarkshraðinn var hærri en hjá Gils í hans hraðasta spretti.
KR notast við gögn í gegnum GPS mælingar frá STATSport en FH nýtir sér Catapult. Það getur því verið einhver munur á mælingunum, en bæði fyrirtækin eru í hæsta gæðaflokki.