Fotbolti.net
24.10.26 - 18:27
Brynjar Óli Ágústsson

Árni Snær sáttur eftir kveðjuleik: Þetta var fokking vel gert hjá honum

Auglýsing
Árni Snær Ólafsson, markvörður Stjörnuna

Árni Snær Ólafsson, markvörður Stjörnuna

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Skemmtilegt að hafa unnið 6-0 og bara helvíti flottir í dag. Skulduðum okkur sjálfir í sumar að vera geggjaðir og bara gefa stuðningsfólki sem mætti,'' segir Árni Snær Ólafsson, markvörður Stjörnuna, eftir 6-0 sigur gegn Val í seinustu umferð Bestu deildarinnar.

Lestu um leikinn: Stjarnan 6 - 0 Valur

Árni hélt hreinu í dag og var 15 ára varnarmaður Arnar Breki flottur fyrir framan Árna í dag.

„Það er bara þannig sko, eins og þessi ungi varnarmaður var geggjaður. Það er gaur sem er geggjaður, miðjumaður sem fer í hafsentinn og svo eru tvö mörk í fyrri hálfleik sem hann sprengir upp með einhverjum sendingum sem enginn sá. Bara geggjaður gæi og áskorun að vera þetta ungur og spila hafsent sem miðjumaður, þetta var fokking vel gert hjá honum.''

Árni Snær rifjar upp tímabilið hjá Stjörnunni.

„Við vorum ekki nógu góðir, bara pirrandi sko. Erfitt tímabil fyrir alla hjá Stjörnunni. Við erum miklu betri en við sýndum og það er bara okkur að kenna,''

Árni Snær var að spila sinn seinasta leik á ferlinum.

„Það var bara geggjað sko, mjög skrítið en svo bara gleymir maður í augnablikinu. Maður verður á kantinum að fylgjast með þessu og mun örugglega fylgjast helling með fótbolta. Sakna bara að vera í kringum strákana og allt þetta. Held að það er það sem maður þarf að finna í einhverjum bumbubolta upp í Skaga,''

Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.