Fotbolti.net
24.10.26 - 20:17
Viktor Ingi Valgarðsson

Gylfi Sig: Mikil seigla í hópnum að ná að vinna sig í gegnum þessar hindranir

Auglýsing
Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður tímabilsins 2026

Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður tímabilsins 2026

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það var fagnað vel á Víkingsvellinum eftir lokaflautið í leik Víkings og Fram. Íslandsmeistarar annað árið í röð og Gylfi Þór Sigurðsson valinn maður mótsins.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 2 Fram

„Markmiðið var að vinna deildina og að verja titilinn sem er búið að reynast mjög erfitt í þessari deild síðustu ár. Gríðarlega ánægður að ná að klára þetta og ná markmiðum okkar. Já bara, geggjuð tilfinning."

Spurður út í hvað liggur á bakvið velgengnina og sérstaklega milli titla því ekki gekk þetta tímabil áfallalaust. „Það er margt og mikið, mikil samheldni í hópnum, sterkir andlega að díla við mjög erfiða hluti sem hafa verið settir fyrir framan okkur. Mikil seigla í hópnum að ná að vinna sig í gegnum þessar hindranir og klárum tímabilið vel, töpum einum leik, á mjög erfiðu tímabili, fullt af erfiðum leikjum. Auðvitað mikið af langvarandi meiðslum sem settu strik í reikninginn en bara gríðarlega sáttur með hvernig við tækluðum það."

Meigum við búast svo bara við sama Gylfa á næsta tímabili? „Já vonandi, markmiðið er bara að bæta sig á hverjum degi og hvort það skili sér síðan í sömu frammistöðu eða verða betri. Tíminn verður að leiða það í ljós. Það er auðvitað markmikið að bæta mig og reyna vera eins góður og ég get áður en ég hætti."

„Já, við ætlum að njóta þess í kvöld að vera Íslandsmeistarar og svo er bara að undirbúa sig fyrir næsta tímabil."

Viðtalið við Gylfa má sjá í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.