Fotbolti.net
27.10.26 - 14:40
Kári Snorrason

Rúnar tekur undir gagnrýni á leikform Stjörnuliðsins - „Leikmenn þurfa líka að líta í eigin barm“

Auglýsing
Rúnar Páll stýrði áður Stjörnunni frá 2013 til 2021.

Rúnar Páll stýrði áður Stjörnunni frá 2013 til 2021.

Canon

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

„Þetta byrjar fáránlega vel, mér líður vel í Garðabænum og er tilbúinn að taka þetta skref með þessu frábæra félagi,“ segir Rúnar Páll Sigmundsson í samtali við Fótbolta.net um endurkomu sína í Garðabæinn.

Rúnar var tilkynntur sem nýr þjálfari Stjörnunnar fyrr í mánuðinum en hann gerði Stjörnuna að Íslandsmeistara 2014 og bikarmeistara 2018.

Garðabæjarfélagið efnti til blaðamannafundar í hádeginu í dag og ræddi Fótbolti.net við Rúnar um endurkomuna í Garðabæ. Hann kemur í Stjörnuna frá Gróttu þar sem hann hafði stýrt liðinu í tvö ár.
Stjarnan hefur kynnt Rúnar Pál og Viktor Bjarka
TENGT EFNI

Stjarnan hefur kynnt Rúnar Pál og Viktor Bjarka

„Mér leið rosa vel í Gróttu, frábært þjálfarateymi, frábær stjórn, duglegt fólk að vinna kringum liðið og leikmannahópurinn frábær. Góður klefi og mér leið hrikalega vel þarna þannig að ég var ekkert á leiðinni frá Gróttu fyrr en Stjarnan talaði við mig. Þá fannst mér ekki hægt að stökkva frá því þegar þeir komu og buðu mér starfið,“ segir Rúnar.

Tekur undir að liðið hafi ekki verið í formi
Stjarnan endaði í 7. sæti Bestu deildarinnar á nýloknu tímabili og verður það að teljast mikil vonbrigði þar sem liðinu var spáð 3. sæti fyrir tímabil..

„Mér finnst Stjörnuliðið bara hafa spilað langt undir pari. Mér finnst leikmannahópur mjög öflugur, góðir leikmenn í hverri einustu stöðu og við þurfum bara að virkja það ennþá frekar og fá menn til að bæta sig í öllu, sóknarleik, varnarleik og líka bara hugarfari,“ segir Rúnar.

Liðið var m.a. gagnrýnt fyrir skort á formi, geturðu tekið undir það?

„Já, ég get alveg tekið undir það. Og í þessu sporti eða í fótbolta þarftu að vera í öflugu formi og það leikmenn þurfa líka að líta í eigin barm þar og þú vilt vera í besta forminu til þess að ná árangri. Það er ekki árangur ef það er ekki í góðu formi, það er bara þannig,“ segir Rúnar.

Býst við fullmótuðu þjálfarateymi í lok vikunnar
Viktor Bjarki Arnarsson var kynntur sem nýr yfirmaður fótboltamála á blaðamannafundi Stjörnunnar í dag en ekki var tilkynnt um hver yrði með Rúnari í þjálfarateyminu.

Hvenær kemur það í ljós?
„Bara vonandi í lok vikunnar eða um kringum helgina, við náum að klára það. Það er allt í fullri vinnslu og já, vonandi náum við að klára það. Það er mjög sterkt fyrir okkur að vera með öflugt þjálfarateymi og teymi kringum þessa stráka og til þess að þeir nái sér bestum árangri,“ segir Rúnar.

Vill berjast um titla
Aðspurður um hvar hann vilji sjá Stjörnuna eftir eitt ár svaraði Rúnar í efri hluta deildarinnar og að berjast um titla. „Þannig á það að vera á öllum vígstöðvum. Stjarnan á bara að vera þar og setja metnað sinn í að vera eitt af toppliðum deildarinnar,“ sagði Rúnar að lokum.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Frá blaðamannafundi liðsins fyrr í dag.

Frá blaðamannafundi liðsins fyrr í dag.

Canon

Mynd: Kári Snorrason

Stjarnan endaði í 7. sæti deildarinnar.

Stjarnan endaði í 7. sæti deildarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stýrði liðinu til sigurs í Mjólkurbikarnum 2018.

Stýrði liðinu til sigurs í Mjólkurbikarnum 2018.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Var við stjórnvölinn er Stjarnan vann sinn fyrsta og eina Íslandsmeistaratitil.

Var við stjórnvölinn er Stjarnan vann sinn fyrsta og eina Íslandsmeistaratitil.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.