Sölvi Geir: Getum verið mjög sáttir með uppskeruna í ár

Sölvi Geir Ottesen þjálfari Víking R.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sölvi Geir Ottesen þjálfari Víking R.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það var stemning á Víkingsvellinum í dag. Síðasti leikurinn í Bestu Deild karla og Íslandsmeistara skjöldurinn á loft þegar lokaflautið kom í leik Víkings og Fram.
Sölvi Geir Ottesen á sínu öðru tímabili sem aðalþjálfari að sækja sinn annan Íslandsmeistara titil.
„Alltaf gaman að vinna titilinn og ná markmiðum sínum, við lögðum okkur upp með að vinna í ár og það tókst. Hrikalega stoltur af liðinu, hvernig árið þróaðist. Lentum í mikið af áföllum og svona álag. Evrópa fór einsog hún fór, vorum nálægt því en ef við horfum á heildarmyndina. Komumst í undanúrslit í bikar, fórum í playoff í Evrópu og unnum sannfærandi Íslandsmeistaratitilinn. Þannig að við getum verið mjög sáttir með uppskeruna í ár."
Þrátt einmitt fyrir áföll sem Víkingsliðið lendir í þá enda þeir með 7stigum meira en í fyrra og mun betri markatölu +51 sem er í raun svakaleg markatala. „Já, við reynum alltaf að bæta okkur frá leik til leik og árs til árs og við sáum klárlega bætingu frá því í fyrra og mér fannst við bara meira routine-erað lið. Erum en að þróa okkur til hins betra og tölfræðin styður það. Þetta er besta árið okkar í ár tölfræðilega séð. Við getum verið stoltir af því."
„Við ætlum bara að fagna í kvöld, þessi dagur snýst um það. Fagna með stuðningsmönnum okkar sem hafa frábærir líka. Þeir eiga þetta svo sannarlega skilið líka. Fylgdu okkur í alla útileiki og voru hrikalega sterkir heima fyrir. Það er skemmtilegt að við gerum þetta allir saman og tökum þátt í þessu öllu saman. Höfum gaman í kvöld og seinna meir förum við að spá í framtíðinni."
Að lokum var Sölvi beðin um nokkur orð um Gylfa Sig sem var valinn maður tímabilsins í Bestu Deildinni. Sölvi hafði margt gott að segja og meðalannars: „Hann hækkar rána hjá okkur og gerir leikmenn í kringum sig betri, ég er bara virkilega ánægður fyrir hans hönd að hafa fengið þessi verðlaun. Hann á þau fyllilega skilið."
Viðtalið við Sölva má sjá í heild sinni hér fyrir ofan
