Fotbolti.net
24.10.26 - 20:03
Viktor Ingi Valgarðsson

Óskar Bogga í gír: Þetta verður hættulegt kvöld

Auglýsing
Óskar Borgþórsson leikmaður Víkings

Óskar Borgþórsson leikmaður Víkings

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Síðasti leikur Bestu Deildar karla fór fram í dag þar sem Víkingar fengu Fram í heimsókn. Íslandsmeistaraskjöldurinn á loft á Víkingsvellinum að leik loknum og fögnuður til fyrirmyndar.

Óskar Borgþórsson leikmaður Víkings kom inná í leiknum en hann hefur verið lengi frá vegna meiðsla. Fótbolti.net fékk að heyra í honum orðið eftir leik.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 2 Fram

„Tilfinningin er ekkert eðlilega góð. Get eiginlega ekkert lýst þessu, þetta er ekkert eðlilega gaman. Fagna þessu með stuðningsmönnunum og að vinna þetta annað árið í röð. Þetta er bara sturlað."

„Það var auðvitað leiðinlegt að meiðast í þessa þrjá mánuði en maður reyndi bara eins gott úr því og maður gat. Búin að vera vinna að því að koma tilbaka allan þennan tíma og er ekkert eðlilega gott að geta náð allavega einum leik."

„Núna er bara, off-season. maður fer eitthvað að njóta í Miami eða eitthvað svoleiðis, í einhverja sól. Svo kemur maður bara aftur og þá byrjar harkan aftur."

„Geggjað að vera í liði ársins, var búin að eiga gott tímabil fram að meiðslunum. Auðvitað leiðinlegt að lenda í þessu en þetta er bara partur af þessu. Maður fattar það þegar maður meiðist hvað maður þarf að vera þakklátur að vera ekki meiddur."

Að lokum voru stuðningsboltar mættir í viðtalið að fagna en spurður út í fögnuðinn í kvöld hafi Óskar þetta að segja: „ég veit það ekki, þetta verður hættulegt kvöld."

Sagði Óskar en viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.

Óskar Bogga í gír: Þetta verður hættulegt kvöld
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.