Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 01. desember 2017 22:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fantasy um helgina - Arsenal gegn Man Utd
Young skoraði tvö mörk í vikunni.
Young skoraði tvö mörk í vikunni.
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildin heldur áfram að rúlla um helgina. Á morgun eru átta leikir og á sunnudaginn eru tveir.

Með þessum leikjum keyrum við 14. umferðina í Fantasy deild American bar og Fótbolta.net. í gang.

Á meðal leikja í þessari umferð er stórleikur Manchester United og Arsenal annað kvöld. Alexandre Lacazette verður ekki með Arsenal í leiknum vegna meiðsla og því er Fantasy-spilurum með Lacazetta í liðinu sínu að breyta áður en leikirnir hefjast á morgun.

Mörg þúsund lið hafa tekið þátt í Fantasy leikjunum hér á Fótbolta.net undanfarin ár og nú förum við á fullt í samstarfi við American Bar.

Í hverjum mánuði verða veitt verðlaun fyrir besta liðið hverju sinni og sigurvegarinn fær veglega úttekt á American Bar en þar er hægt að sjá leiki ensku úrvalsdeildarinnar í allan vetur.

Við byrjuðum að telja frá 2. umferð en þú átt enn möguleika ef þú skráir þig ekki seinna en strax

Smelltu hér til að skrá þig í American Bar Fantasy deildina.

Kóðinn til að skrá sig er: 1694347-644884
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner