Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   mán 21. júní 2010 23:01
Magnús Már Einarsson
Gilles Mbang Ondo: Sýndum góðan karakter
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gilles Mbang Ondo var hetja Grindvíkinga gegn Haukum í kvöld en hann skoraði tvívegis á tveggja mínútna kafla í síðari hálfleik og tryggði liðinu 3-2 sigur í fallbaráttuslag.

,,Ég er ánægður, við vorum að tapa 2-0 í hálfleik en við sýndum góðan karater og unnum leikinn, það er gott fyrir félagið og alla að vinna tvo leiki í röð" sagði Ondo við Fótbolta.net eftir leik.

,,Í hálfleik talaði þjálfarinn við okkur og sagði okkur að halda áfram. Við vorum líka að tapa gegn Breiðablik í hálfleik en við gáfum allt í þetta og unnum."

Ondo er nú kominn með fimm mörk í deildinni en hvaða markmið hefur hann sett sér?

,,Ég veit það ekki, við sjáum til," svaraði hann.

Grindavík hefur nú unnið tvo leiki í röð, fyrstu leiki liðsins á tímabilinu.

,,Já, eins og ég hef áður sagt þá þurftum við bara einn sigur og þá kemur góður karakter og við byrjum að spila vel. Nú höfum við unnið tvo leiki í röð og vonandi vinnum við næsta leik."
banner
banner