Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 17. maí 2016 15:00
Fótbolti.net
Lið 2. umferðar Inkasso: Tveir lánsmenn frá Stjörnunni
Miðvörðurinn Óttar Bjarni Guðmundsson.
Miðvörðurinn Óttar Bjarni Guðmundsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Luka Kostic er þjálfari umferðarinnar.
Luka Kostic er þjálfari umferðarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net fjallar best allra fjölmiðla um Inkasso-deildina, 1. deild karla, en önnur umferðin er að baki. Hér má sjá úrvalslið umferðarinnar.

Leiknir R. hefur sumarið af miklum krafti og vann 4-1 sigur gegn HK. Leiknismenn eiga þrjá leikmenn í úrvalsliðinu, þar á meðal Elvar Pál Sigurðsson sem hefur skorað í báðum umferðunum.

Óvænt tíðindi urðu á Ásvöllum þar sem Haukar fóru illa með stjörnum prýtt lið KA 4-1. Haukar eiga þrjá fulltrúa í liðinu.

Keflavík vann 3-0 sigur á Selfossi þar sem Sigurbergur Elísson og Jónas Guðni Sævarsson voru bestu menn.

Fjarðabyggð vann Leikni Fáskrúðsfirði 1-0 og á tvo fulltrúa í liðinu, báðir eru þeir lánsmenn frá Stjörnunni.



Úrvalslið 2. umferðar Inkasso:
Sveinn Sigurður Jóhannesson - Fjarðabyggð

Óttar Bjarni Guðmundsson - Leiknir
Gunnlaugur Fannar Guðmundsson - Haukar
Björn Berg Bryde - Grindavík

Jónas Guðni Sævarsson - Keflavík
Atli Arnarsson - Leiknir
Jón Arnar Barðdal - Fjarðabyggð
Sigurbergur Elísson - Keflavík

Elvar Páll Sigurðsson - Leiknir
Arnar Aðalgeirsson - Haukar
Fufura - Haukar

Þjálfari umferðarinnar: Luka Kostic, Haukar.

Sjá einnig:
Lið 1. umferðar
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner