Stjörnuleikmaðurinn Gareth Bale hefur tilkynnt að hann muni bráðlega opna sportbar í Cardiff í Wales. Elevens Bar & Grill mun staðurinn heita og verður í hjarta höfuðborgarinnar.
Staðurinn er nefndur eftir treyjunúmeri Bale og ber einkennismerki hans.
Staðurinn er nefndur eftir treyjunúmeri Bale og ber einkennismerki hans.
Bale sjálfur hefur tekið virkan þátt í að koma staðnum af stað. Hann hefur aðstoðað við að setja drykkjarseðilinn saman og smakkað þann mat sem verður í boði á staðnum.
„Það hefur verið markmið hjá mér að opna sportbar í Cardiff. Borgin þarf að hafa aðalstað þar sem hægt er að koma og horfa á íþróttir. Stórir viðburðir eru sýndir og hægt að fá sér góðan mat og drykki í vinalegu umhverfi," segir Bale.
„Ég hef komið á sportbari um allan heim og það er alltaf gott að komast á sportbari sem eru með pizzur, hamborgara og smárétti sem allir elska. Við stefnum á að bjóða upp á bestu bogarana í Cardiff."
Sportbarinn hans Bale er í góðu samstarfi við helsta bruggfyrirtæki Wales, Brains. Fyrirtækið hefur lengi verið einn helsti styrktaraðili knattspyrnusambands Wales.
Athugasemdir