Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
banner
   lau 01. október 2016 16:43
Daníel Geir Moritz
Ian Jeffs um framhaldið: Ég veit ekkert
Veit ekki hvort hann verði áfram
Veit ekki hvort hann verði áfram
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
„Það er náttúrulega bara léttir að við spilum í Pepsi deildinni á næsta tímabili,“sagði Ian Jeffs, þjálfari ÍBV, eftir 1-1 jafntefli við FH í dag.
 

Lestu um leikinn: FH 1 -  1 ÍBV

„Ef við tökum bara leikinn í dag er ég drullu svekktur að taka ekki þrjú stig í dag. Mér fannst spilamennskan mjög góð og þeir þurftu bara hjálp í dag,“ sagði Jeffs og vísaði þar til vítaspyrnu sem FH fengu undir lok leiks. „Þetta fór klárlega í hendina á honum en hann var ekki að reyna að teygja sig í boltann. Hann stóð allan tímann með hendina við hliðina á líkamanum.“

Mikið hefur verið spáð í þjálfaramál ÍBV en Ian Jeffs og Alfreð Elías Jóhannsson tóku tímabundið við og er ljóst að Alfreð verður ekki áfram. „Ég get ekki svarað þessu,“ svaraði Jeffs aðspurður um hans framhald. „Það var sagt við okkur að klára tímabilið og við erum búnir að gera það. Markmiðið var að halda okkur í þessari deild og við erum búnir að gera það. En allt hitt er í óvissu. Ég veit ekkert.“ 

Athugasemdir
banner
banner
banner