Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 02. september 2015 08:30
Alexander Freyr Tamimi
Busquets finnst fótbolti betri en kynlíf
Busquets elskar fótbolta.
Busquets elskar fótbolta.
Mynd: Getty Images
Sergio Busquets, miðjumaður Barcelona, hefur komist að þeirri niðurstöðu að fótbolti sé betri en kynlíf vegna þess að ánægjan af fótbolta varir lengur.

Spænski landsliðsmaðurinn er vanur því að vinna titla. Hann hefur orðið Evrópumeistari þrisvar, Spánarmeistari fimm sinnum og bikarmeistari fimm sinnum með Barcelona.

„Í fótbolta endist hamingjan í þrjá eða fjóra daga," sagði Busquets við spænska sjónvarpsþáttinn El Hormiguero.

„Kynlíf hins vegar, getur stundum enst í einungis eina mínútu!"
Athugasemdir
banner
banner
banner