Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 03. ágúst 2015 07:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Szczesny ánægður með að spila sinn fyrsta leik með Roma
Wojciech Szczesny
Wojciech Szczesny
Mynd: Getty Images
Wojciech Szczesny, markmaður Roma var glaður með að hafa spilað sinn fyrsta leik fyrir félagið er það tapaði 2-0 fyrir Sportin Lisbon í vináttuleik.

Pólverjinn kom inná í hálfleik en hann er nýkominn til félagsins frá Arsenal.

„Það er gott að hafa spilað fyrsta leikinn," sagði Szczesny, eftir leikinn. „Þetta var góð reynsla og ég er búinn að eiga góða viku á æfingum, þetta er flottur hópur."

„Við verðum hins vegar að spila betur en þetta því það eru engir vináttuleikir hjá svona stóru félagi og þú verður að vinna. Úrslitin voru mjög slæm."


Athugasemdir
banner