Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
banner
   fim 04. janúar 2018 14:03
Magnús Már Einarsson
Freysi: Samgleðst Dagnýju
Freyr Alexandersson.
Freyr Alexandersson.
Mynd: Fotbolti.net - Anna Þonn
„Við viljum nýta þetta verkefni til að búa til fleiri landsliðsmenn vonandi. Við viljum gefa yngri leikmönnum tækifæri," sagði Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfarieftir að hann valdi hópinn sem mætir Noregi.

Samgleðst Dagnýju
Freyr var hrekktur í sumar þegar Fanndís Friðriksdóttir laug að honum rétt fyrir EM að hún væri ólétt. Dagný Brynjarsdóttir er ólétt núna og verður ekki meira með landsliðinu í undankeppni HM. Voru viðbrögð Freys þau sömu og þegar Fanndísi hrekkti hann?

„Það var ekki þannig. Auðvitað kom mér þetta svolítið á óvart. Þetta var símtal á milli okkar tveggja. Þetta er aðstaða sem er alltaf skrýtin fyrir landsliðsþjálfara, að fá tilkynningu um að lykilmaður verði frá í langan tíma. Ég samgleðst henni og hennar fólki og vona að þetta gangi alltaf vel."

Guðný ógnar Sif í hraða
Guðný Árnadóttir, varnarmaður úr FH, er nýliði í hópnum að þessu sinni.

„Hún hefur spilað vel með yngri landsliðum og ég hef séð hana mikið i Pepsi-deildinni. Fyrir mér er þetta efni sem gæti náð mjög langt. Hún ógnar Sif Atladóttur hressilega varðandi hraða. Þessi stelpa er með grunn úr frjálsum íþróttum og er rosalega fljót. Hún er líka með mikinn leikskilning og var besti leikmaður FH síðastliðið sumar. Vonandi heldur hún áfram að vaxa. Núna fær hún að vera í kringum okkar bestu leikmenn og ef allt gengur vel á æfingunum þá gæti hún fengið mínútur á móti Noregi."

Þurfa að komast yfir hindranir í atvinnumennskunni
Margir leikmenn hafa farið út í atvinnumennsku að undanförnu en Freyr kallaði eftir því í fyrra að fleiri leikmenn myndu fara út.

„Leikmenn þurfa að taka ákvörðun sem er best fyrir þær sjálfar. Þetta er spennandi og vonandi gengur þetta upp. Ég vona að leikmenn átti sig samt á því að grasið er ekki alltaf grænna hinumegin og það þarf að velja vel. Þær þurfa að vera tilbúnar að takast á við áreiti sem kemur upp þegar þú ferð í nýtt umhverfi. Það koma upp erfiðleikar þegar þú ert í nýju liði í nýju landi og þær þurfa að komast yfir þær hindranir. Ég er viss um að nýtt áreiti geti hjálpað öllum. Það fer eftir hugarfari hvers og eins. Vonandi gengur þetta vel og þá er þetta gott fyrir landsliðið," sagði Freyr.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner