Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   fim 04. janúar 2018 13:25
Magnús Már Einarsson
Hópurinn gegn Noregi: Einn nýliði
Guðný Árnadóttir er í hópnum.
Guðný Árnadóttir er í hópnum.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Dagný er barnshafandi.
Dagný er barnshafandi.
Mynd: Fotbolti.net - Anna Þonn
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna, hefur tilkynnt 23-manna hóp sem mætir Noregi í vináttuleik á La Manga á Spáni þann 23. janúar.

Dagný Brynjarsdóttir er ekki í hópnum en hún er ólétt.

Guðný Árnadóttir, varnarmaður FH, er nýliði í hópnum að þessu sinni.

„Hún er gríðarlega efnilegur miðvörður hjá Fimleikafélaginu," sagði Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari um Guðnýju.

Anna Rakel Pétursdóttir úr Þór/KA og Selma Sól Magnúsdóttir úr Breiðabliki eru einnig í hópnum. Þær hafa áður verið valdar í hóp en eiga ekki landsleik að baki.

Andrea Rán Hauksdóttir og Svava Rós Guðmundssdóttir koma inn í hópinn í fyrsta skipti í ár.

Tíu leikmenn í hópnum væru gjaldgengir í U23 ára landsliðið og Freyr hyggst leyfa ungum leikmönnum tækifæri í leiknum gegn Noregi.

Markverðir
Guðbjörg Gunnarsdóttir Djurgarden
Sandra Sigurðardóttir, Valur
Sonný Lára Þráinsdóttir, Breiðablik

Varnarmenn
Rakel Hönnudóttir, LB07
Anna Björk Kristjánsdóttir, LB07
Sif Atladóttir, Kristianstad
Glódís Perla Viggósdóttir, FC Rosengard
Ingibjörg Sigurðardóttir, Djurgarden
Hallbera Guðný Gísladóttir, Valur
Anna Rakel Pétursdóttir, Þór/KA
Guðný Árnadóttir, FH

Miðjumenn
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, Utah Royals
Sara Björk Gunnarsdóttir, Wolfsburg
Sigríður Lára Garðarsdóttir, ÍBV
Selma Sól Magnúsdóttir, Breiðablik
Sandra María Jessen, Slavia Prag
Andrea Rán Hauksdóttir, Breiðablik
Svava Rós Guðmundsdóttir, Roa

Sóknarmenn
Katrín Ásbjörnsdóttir, Stjarnan
Berglind Björg Þorvalsdóttir, Verona
Elín Metta Jensen, Valur
Fanndís Friðriksdóttir, Marseille
Agla María Albertsdóttir, Stjarnan

Athugasemdir
banner
banner