Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 05. maí 2015 20:33
Magnús Már Einarsson
Sturridge í aðgerð
Mynd: Getty Images
Daniel Sturridge, framherji Liverpool, fór í dag í aðgerð á mjöðm en hann hefur verið að glíma við þrálát meiðsli.

„Vildi láta heiminn vita af því að ég fór í aðgerð á mjöðm í dag og hún gekk vel. Ég vil þakka Guði fyrir að gera þetta mögulegt," sagði Sturridge á Instagram í kvöld.

Sturridge hefur verið meira og minna frá keppni vegna meiðsla á þessu tímabili.

Samtals hefur þessi 25 ára gamli leikmaður einungis komið við sögu í 18 leikjum á tímabilinu og afar ólíklegt er að þeir verði fleiri.
Athugasemdir
banner
banner
banner