Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 07. febrúar 2016 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gary Neville: Verðum að sýna þrá til að vinna leiki
Gary Neville
Gary Neville
Mynd: Getty Images
Gary Neville, stjóri Valencia, segir að leikurinn gegn Real Betis í dag sé ekkert stærri en aðrir leikir liðsins, þrátt fyrir að stuðningsmenn vilji sjá hann hverfa úr stjórastólnum.

Neville hefur ekki enn unnið deildarleik sem stjóri Valencia og tapaði liðið 7-0 gegn Barcelona í bikarnum í vikunni, en stuðningsmennirnir eru skiljanlega allt annað en sáttir.

"Allir leikir eru leikir sem þarf að vinna hjá þessu félagi. Sama hver þjálfarinn er, þá eru það væntingarnar," sagði Neville.

"Við verðum að sýna þrá til að vinna leiki. Miðvikudagskvöldið var slæmt kvöld fyrir okkur."

Neville, er eins og áður segir undir mikilli pressu frá stuðningsmönnum og þá hefur Santiago Canizares, fyrrverandi fyrirliði liðsins, einnig látið Neville heyra það.

"Ég er skrýtin manneskja. Ég sá reiði stuðningsmannanna og það eina sem ég gat hugsað var: Vá, ég hef aldrei séð jafn ástríðufulla stuðningsmenn og þessa," sagði Neville.

"Ég veit að þeir voru ekki að sýna ástríðu á góðan hátt, en ég er eina manneskjan sem getur tekið það jákvæða út úr eins slæmri stöðu og þessari."
Stöðutaflan Rússland Efsta deild - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Zenit 25 15 5 5 44 22 +22 50
2 FK Krasnodar 25 14 7 4 41 25 +16 49
3 Dinamo 25 12 8 5 42 33 +9 44
4 Lokomotiv 25 10 11 4 42 34 +8 41
5 Kr. Sovetov 25 11 6 8 43 35 +8 39
6 Spartak 25 11 6 8 34 29 +5 39
7 CSKA 25 9 11 5 44 33 +11 38
8 Rostov 25 10 7 8 37 38 -1 37
9 Rubin 25 10 6 9 23 30 -7 36
10 Nizhnyi Novgorod 25 8 4 13 24 33 -9 28
11 Orenburg 25 6 8 11 28 33 -5 26
12 Fakel 25 6 8 11 19 28 -9 26
13 Akhmat Groznyi 25 7 5 13 24 37 -13 26
14 Ural 25 6 6 13 24 39 -15 24
15 Baltica 25 6 5 14 25 31 -6 23
16 Sochi 25 4 7 14 26 40 -14 19
Athugasemdir
banner
banner