Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 08. mars 2018 12:30
Elvar Geir Magnússon
Sagt að Pepe Reina fari til AC Milan í sumar
Reina næsti markvörður AC Milan?
Reina næsti markvörður AC Milan?
Mynd: Getty Images
Gazzetta dello Sport segir að það sé þegar frágengið að markvörðurinn Pepe Reina muni fara til AC Milan í sumar. Samningur hans við Napoli rennur út eftir tímabilið og félagið er aðeins tilbúið að bjóða honum eins árs framlengingu.

Samkvæmt reglum FIFA mega önnur félög tala við leikmann þegar sex mánuðir eru eftir af samningi hann en þurfi að láta félag hans vita þegar samningar hafa nást.

Gazetta segir að AC Milan hafi látið Napoli vita að samkomulag hafi náðst við Reina um tveggja ára samning en hann verður 36 ára í ágúst.

Hinn ungi Gianluigi Donnarumma er aðalmarkvörður AC Milan en sögusagnir hafa verið í gangi um að þessi 19 ára strákur verði seldur í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner