Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 08. desember 2017 08:00
Fótbolti.net
Beint í mark Pub Quiz á Hvíta Riddaranum í kvöld
Mynd: Beint í mark
Í kvöld fer fram alvöru fótbolta Pub Quiz á Hvíta Riddaranum í Mosfellsbæ. Ekkert kostar að taka þátt.

Keppnin er í samstarfi við fótboltaspilið Beint í mark sem kom út á dögunum. Spyrill verður Magnús Már Einarsson, ritstjóri Fótbolta.net og einn af spurningahöfundum Beint í mark.

Spilið verður á sértöku tilboðsverði fyrir og eftir keppni.

Keppnin hefst á slaginu 21:00 en frábærir vinningar eru í boði. Tveir og tveir verða saman í liði og verða spurningarnar úr öllum hliðum fótboltans, íslenskt og erlent.

Til mikils er að vinna en á meðal vinning er spilið Beint í mark ásamt fleiri góðum vinningum.

Nældu þér í liðsfélaga, mættu tímanlega á Hvíta Riddarann í Mosfellsbæ og taktu þátt í gleðinni.

Smelltu hér til að fara á beintimark.is
Athugasemdir
banner
banner