Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 08. desember 2017 21:56
Ingólfur Stefánsson
Spánn: Alaves sigraði fallbaráttuslaginn
El Haddadi skoraði annað mark Alaves
El Haddadi skoraði annað mark Alaves
Mynd: GettyImages
Alaves 2-0 Las Palmas
1-0 Ibai Gomez (23')
2-0 El Haddadi (55')

Alaves sigraði botnbaráttuslag kvöldsins í spænsku úrvalsdeildinni þegar liðið tók á móti Las Palmas. Fyrir leikinn voru liðin í 18. og 19. sæti deildarinnar.

Alaves fer upp fyrir Las Palmas með sigrinum og eru nú með jafnmörg stig og Deportivo La Coruna sem eru í 17. sæti með betri markatölu og leik til góða.

Las Palmas gæti endað á botninum í lok umferðarinnar takist botnliði Malaga að sigra Real Sociedad á sunnudag.
Athugasemdir
banner
banner