Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   lau 09. janúar 2016 16:45
Elvar Geir Magnússon
Upptaka - Hlustaðu á útvarpsþátt dagsins í heild
Komin er inn upptaka af þætti dagsins.
Komin er inn upptaka af þætti dagsins.
Mynd: Fótbolti.net
Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson voru í stuði í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97.7 í dag. Nú er komin inn upptaka af þættinum í heild sinni og má nálgast hana í spilaranum hér fyrir neðan.

Upptökur af öllum þáttunum koma á Vísi

Rætt var við Bolton-goðsögnina Guðna Bergsson um stöðu Bolton í dag en liðið er límt í neðsta sæti Championship-deildarinnar og í fjárhagskröggum.

Farið var yfir landsliðshópinn sem er að fara til Abu Dhabi og sett saman sterkasta byrjunarliðið úr hópnum. Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson var á línunni í skemmtulegu spjalli en hann hefur verið að leika gríðarlega vel með Cardiff að undanförnu.

Þá var fjallað um enska boltann. Daníel Geir Moritz, stuðningsmaður Arsenal, kíkti í spjall síðasta kafla þáttarins.


Athugasemdir
banner
banner
banner