Atletico Madrid og Valencia komust áfram í 8-liða úrslit spænska Konungsbikarsins í kvöld.
Atletico rúllaði í gegnum neðrideildarlið Lleida Esportiu. Eftir að hafa unnið fyrri leikinn 4-0 á útivelli vann höfuðborgarliðið 3-0 í kvöld með mörkum frá Yannick Ferreira Carrasco, Kevin Gameiro og Vitolo.

Atletico vann samanlagt 7-0 og verður í pottinum þegar dregið verður í 8-liða úrslit, rétt eins og Valencia.
Valencia mætti Las Palmas en fyrri leikur liðanna endaði 1-1. Í kvöld vann Valencia 4-0 stórsigur og skoraði Luciano Vietto þrennu.
Atletico Madrid 3 - 0 Lleida Esportiu
1-0 Yannick Ferreira Carrasco
2-0 Kevin Gameiro
3-0 Vitolo
Valencia 4 - 0 Las Palmas
1-0 Luciano Vietto
2-0 Luciano Vietto
3-0 Nemanja Maksimovic
4-0 Luciano Vietto
Athugasemdir