Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   mán 09. febrúar 2015 21:59
Ívan Guðjón Baldursson
Freyr Alexandersson: Vorum lélegir sóknarlega
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Freyr Alexandersson, annar af þjálfurum Leiknis, var svekktur með tap sinna manna í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins.

,,Fín spilamennska á köflum við sköpuðum okkur bara of fá færi, það var það sem við erum óánægðir með," sagði Freyr eftir tapið.

,,Þetta er samt ekkert nýtt, við erum ekki búnir að spila neitt glimrandi á þessu Reykjavíkurmóti, erum búnir að koma okkur áfram á því að spila ágætis varnarleik, en samt fáum við á okkur alltof mörg mörk."

Freyr var ekki óánægður með frammistöðu sinna manna í leiknum en kenndi helst sköpunarleysi í sóknarleiknum um tapið.

,,Í dag voru þetta bara skyndisóknir hjá þeim, þeir voru ekki búnir að fara yfir miðju þegar þeir komust í 1-0. Fyrsti bolti í gegn og mark.

,,Þá geta þeir pakkað í vörn, sem þeir gerðu bara mjög vel og við vorum lélegir sóknarlega."

Leiknir heimsækir Val í fyrstu umferð Pepsí-deildar karla sem hefst sunnudaginn 3. maí.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner