Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 09. apríl 2018 21:57
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Andri Freyr skaut Aftureldingu í úrslit
Andri Freyr Jónasson.
Andri Freyr Jónasson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Afturelding 5 - 3 Kári
1-0 Andri Freyr Jónasson ('15)
2-0 Andri Freyr Jónasson ('16, víti)
2-1 Ragnar Már Lárusson ('24)
2-2 Marínó Hilmar Ásgeirsson ('28)
3-2 Andri Freyr Jónasson ('37, víti)
4-2 Andri Freyr Jónasson ('52)
4-3 Alexander Már Þorláksson ('68)
5-3 Tryggvi Magnússon ('82)

Andri Freyr Jónasson skoraði fern þegar Afturelding lagði Kára að velli í undanúrslitum B-deildar Lengjubikarsins.

Andri skoraði tvö mörk með stuttu millibili snemma leiks. Seinna markið skoraði hann úr vítaspyrnu.

Ragnar Már Lárusson og Marínó Hilmar Ásgeirsson jöfnuðu fyrir Kára áður en Andri steig aftur svellkaldur á vítapunktinn og fullkomnaði þrennuna.

Andri kom Aftureldingu í 4-2 snemma í síðari hálfleik og minnkaði Alexander Már Þorláksson muninn á 68. mínútu.

Afturelding tryggði sér sigurinn með fimmta markinu á lokakaflanum þegar varamaðurinn Tryggvi Magnússon skoraði. Afturelding mætir Völsungi í úrslitaleiknum þann 26. apríl.
Athugasemdir
banner
banner
banner