Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 09. október 2015 18:12
Elvar Geir Magnússon
Heimild: KR 
Stefán Logi áfram hjá KR (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markvörðurinn Stefán Logi Magnússon hefur skrifað undir nýjan samning við KR og mun því leika með liðinu 2016 og 2017.

Stefán átti fínt tímabil með KR í sumar og var á bekknum í liði ársins að mati Fótbolta.net.

Hann fékk sextán mörk á sig í Pepsi-deildinni í sumar.

Stefán varð bikarmeistari með KR 2008 og 2014 en hefur ekki afrekað það enn að verða Íslandsmeistari með liðinu.

Fyrr í dag hélt KR fréttamannafund þar sem tilkynnt var að Indriði Sigurðsson mun spila með liðinu næsta sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner