Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 09. desember 2017 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Jón Dagur með glæsilegt mark
Mynd: Getty Images
Jón Dagur Þorsteinsson hefur vakið athygli fyrir frammistöðu sína með U23 ára liði Fulham að undanförnu.

Hann hefur verið iðinn við kolann og skorað nokkur mörk, og þá er ekki verið að tala um "línupotsmörk".

Jón Dagur var á skotskónum í gærkvöldi þegar varalið Fulham gerði 1-1 jafntefli gegn Brighton í hörkuleik.

Markið sem Jón Dagur skoraði var einstaklega glæsilegt. Hann fékk boltann vinstra megin, sótti yfir á hægri fótinn og svoleiðis smellti boltanum í fjærhornið. Markvörður Brighton átti enga möguleika.

Hér að neðan er myndband af markinu, en það fer væntanlega að styttast í það að Jón Dagur fái tækifæri með aðalliði Fulham.





Athugasemdir
banner
banner