Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 10. febrúar 2016 19:34
Arnar Geir Halldórsson
Heimild: Liverpool 
Miðaverð á Anfield mun ekki hækka
Anfield
Anfield
Mynd: Getty Images
Miðaverð á heimaleiki Liverpool mun ekki hækka á næstu leiktíð eins og fyrirhugað var.

Eigendur félagsins sendu frá sér tilkynningu á heimasíðu Liverpool nú rétt í þessu þar sem greint er frá því að dýrustu miðarnir muni áfram kosta 59 pund en ekki 77 pund.

Þá munu ársmiðarnir ekki heldur hækka í verði.

Stuðningsmenn félagsins efndu til mótmæla um síðustu helgi vegna áforma eigendanna um að hækka miðaverðið og það virðist hafa náð til æðstu manna Liverpool.

Í yfirlýsingunni biðjast eigendur félagsins einnig afsökunar á þeim óþægindum sem fréttir um fyrirhugaða hækkun hafi valdið.
Athugasemdir
banner
banner