Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 10. mars 2018 15:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Einkunnir Man Utd og Liverpool: Rashford og Lukaku bestir
Mynd: Getty Images
Manchester United lagði Liverpool að velli þegar þessi tvö af sigursælustu liðum í sögu enska boltans mættust á Old Trafford í Manchester þennan laugardaginn.

Marcus Rashford skoraði bæði mörkin fyrir United í 2-1 sigri og hann er maður leiksins að mati Daily Mail. Hann fær 9 í einkunn, en næstur kemur Romelu Lukaku með 8,5.

Leikmenn Liverpool skora ekki hátt. Dejan Lovren og Trent Alexander-Arnold þóttu sérstaklega slakir.

Einkunnir Man Utd: De Gea 7,5 - Valencia 6 - Bailly 6 - Smalling 7 - Young 8 - Matic 7,5 - McTominay 6,5 - Mata 7 - Rashford 9 - Sanchez 6 - Lukaku 8,5. (Fellaini 6)

Jose Mourinho: 8

Einkunnir Liverpool: Karius 6 - Alexander-Arnold 5 - Van Dijk 6 - Lovren 5 - Robertson 6 - Oxlade-Chamberlain 5,5 - Can 6 - Milner 6 - Salah 5,5 - Firmino 6,5 - Mane 7. (Lallana 6,5)

Jurgen Klopp: 6

Maður leiksins: Marcus Rashford
Athugasemdir
banner
banner
banner