Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   þri 10. apríl 2018 09:00
Magnús Már Einarsson
ABBA og fjórða skipting í Mjólkurbikarnum
Fjórða skiptingin verður nú leyfileg.
Fjórða skiptingin verður nú leyfileg.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alþjóðanefnd knattspyrnusambanda, IFAB, hefur gert nokkrar breytingar á knattspyrnulögunum, sem taka gildi á komandi keppnistímabili í mótum KSÍ.

Breytingarnar taka strax gildi í fyrstu umferð Mjólkurbikarsins í vikunni. Þar verður meðal annars heimilt að nota fjórðu skiptinguna í framlengingu auk þess sem „Abba" kerfið verður notað í vítaspyrnukeppni.

Hér verður stiklað á stóru yfir helstu breytingarnar en textinn er af vef KSÍ.

Viðbótarleikmannaskipti í framlengingu leikja
Heimilt verður að skipta viðbótarleikmanni inn á í framlengingu leikja. Á þetta við um Mjólkubikar KSÍ karla og kvenna þar sem heimilt verður að skipta inná fjórða varamanni og í úrslitakeppni 4. deildar karla þar sem gefst möguleiki á sjöttu skiptingunni.

Rafrænn búnaður til mælinga
Leyfilegt verður að nota rafrænan búnað til mælinga á frammistöðu og staðsetningum leikmanna svo eitthvað sé nefnt. Búnaðurinn verður að uppfylla alþjóðlegan gæðastaðal, IMS. Ef slíkar merkingar eru ekki á búnaðinum er notkun hans óheimil. Jafnramt er heimiluð notkun á litlum lófatölvum eða litlum samskiptatækjum í boðvöngum til þess að taka á móti upplýsingum úr EPTS -búnaðinum sem einungis má nýta í taktískum eða læknisfræðilegum tilgangi með velferð leikmanna í huga. Vakin er athygli á að stranglega er bannað að nota þessi tæki til að fylgjast með beinum útsendingum knattspyrnuleikja.

„ABBA-spyrnuröð“ í vítaspyrnukeppnum
Á komandi keppnistímabili verður notast við svokallaða ABBA-knattspyrnuröð í vítaspyrnukeppnum í öllum mótum á vegum KSÍ. Keppni í Mjólkurbikarnum hefst fimmtudaginn 12. apríl og mun þessi breyting taka gildi þá. Breytingin fellst í því að þegar liðið sem vinnur hlutkestið hefur tekið fyrstu spyrnuna, skiptast liðina á eftir hverjar tvær spyrnur hvort þar til úrslitin eru ráðin.

Markverði heimilt að handleika boltann að nýju eftir að hann hefur hrokkið frá honum
Markvörðum verður nú heimilt að handleika boltann á ný eftir að hann hrekkur af höndum þeirra, viljandi eða óviljandi.

Notkun gulra og rauðra spjalda á boðvangi
Dómurum er nú heimilt að sýna forráðamönnum liða sem eru á leikskýrslu gul og rauð spjöld til að gefa áminningar og brottvísanir til kynna. Í áhersluatriðum dómaranefndar fyrir komandi tímabilið er lögð mikil áhersla á stöðva óviðeigandi hegðun leikmanna og forráðamanna. Sérstakur gaumur verður gefinn að óviðeigandi hegðun forráðamanna á boðvangi og dómurum hafa verið gefin skýr fyrirmæli um að slík hegðun verður ekki liðin. Þetta er fyllilega í samræmi við þær áherslur sem FIFA og UEFA hafa gefið út.

Krjúpa í innkasti
Leikmanni er óheimilt að krúpa á kné þegar innkast er tekið.
Athugasemdir
banner
banner